Tilveran

Handstöðunámskeið

Nánari upplýsingar

Hefur þig dreymt um að geta staðið á höndum?
Langar þig að læra undirstöður liðleika og styrks til þess að geta staðið á höndum?
Kanntu að standa á höndum og langar að fínpússa það með fleiri liðleika og styrktaræfingum?

Farið verður vel yfir liðleika- og styrktaræfingar fyrir únliði og axlir sem og allan líkamann.
Kenndar aðferðir sem hjálpa þér að sigrast á óttanum við að fara á hvolf.
Þú munt læra hvaða líkamsparta þú þarft að styrkja sem og auka liðleika.
Fræðast um hvað ber að varast í handstöðum.
Markmiðið er að þú farir heim betri og fróðari en þegar þú komst og getir nýtt þessi verkfæri áfram.

Handstöðunámskeið

7.900 kr.

Námskeiðið verður haldið í Miðgarði í Garðabæ

Laugardaginn 6. júní frá 10:00-13:00

Hentar öllum getustigum

 

 

 

Deila á Facebook