Tilveran

Tilveran Studio

Taktu heilsuna föstum tökum – líkamlega og andlega.
Í Tilveran Studio sameinum við barre, pilates og jóga í faglegri og einstaklingsmiðaðri þjálfun þar sem þín vellíðan er í fyrirrúmi.

Tímarnir okkar

Barre

Í barre styrkjum við kjarnann til að byggja upp stöðugleika og jafnvægi. Með endurteknum og skalanlegum æfingum eykur þú liðleika, samhæfingu og sjálfstraust. Hver tími er krefjandi, en skemmtilegur og gefur þér styrk og vellíðan í senn.

Mat pilates

Mat-Pilates er mjúk og áhrifarík æfing sem styrkir kvið, mjóbak og mjaðmir, bætir jafnvægi og liðleika og eykur líkamsvitund. Æfingarnar eru skalanlegar að getu hvers og eins og henta öllum aldri – hvort sem þú ert byrjandi eða hefur stundað Pilates áður.

Yin yoga & bandvefslosun

Rólegir tímar þar sem unnið er með bandvefslosun með boltum og léttum teygjum. Farið er í  djúpar Yin teygjur þar sem stöðum er haldið lengi og hjálpa taugakefinu að gefa betur eftir. Þessir tímar eru góðir til að ná endurheimt og róa huga og líkama.

Yoga 60+

Í þessum tímum styrkir þú líkamann, eykur liðleika, bætir jafnvægi og samhæfingu. Æfingarnar mýkja bandvef, draga úr stífleika, auka blóðflæði og næringu til vefja – og geta minnkað verki og bætt líkamsstöðu.

Um okkur

Í Tilveran Studio mætum við þér þar sem þú ert – hvort sem þú sækist eftir krefjandi æfingum eða mjúkum jógatímum, bandvefslosun og slökun. Hjá okkur æfir þú í minni hópum, þar sem þú færð persónulega leiðsögn og einstaklingsmiðaða þjálfun, svo þú náir sem bestum árangri.

Komdu og upplifðu kraftinn, mýktina og vellíðanina í Tilveran Studio.

Konur og heilsa

Algengar spurningar

Endilega, það er alltaf velkomið að koma í prufutíma. Mikilvægt er að skrá sig í tímann áður þar sem það er takmarkaður fjöldi.

Við erum með fimmtán iðkendur í hverjum tíma svo allir hafi gott pláss og fái næga athygli.

Allur búnaður er til staðar í tímum. Þér er velkomið að taka með þér jóga-handklæði eða annað eftir þörfum.

Þægilegum æfingafötum sem auðvelt er að hreyfa sig í. Margir kjósa sokka með gripi, en það er ekki nauðsynlegt.

Nei, tímarnir henta öllum – bæði byrjendum og lengra komnum. Allar æfingar eru skalanlegar og því hægt að aðlaga að hverjum og einum.

 

Það er nóg pláss fyrir framan og aftan. Inngangurinn við Garðatorg er innandyra og því hægt að koma með börnin og leyfa þeim að sofa í öllum veðrum.

VINKONUTILBOÐ

Tvær vinkonur skrá sig saman og áskriftin lengist

Með vinkonutilboði fáið þið þriggja mánaða áskrift á verði tveggja mánaða og njótið þess að hreyfa ykkur í góðum félagsskap.