Mjúk og örugg leið inn í hreyfingu
Unnið er með einfaldar styrktar- og liðleikaæfingar sem bæta hreyfigetu, minnka stífleika og auka líkamsvitund. Áhersla er lögð á rólega og örugga framkvæmd þar sem hver og ein vinnur út frá sinni getu.
Tímarnir eru 50 mínútur og fara fram í litlum hópum, hámark 10 iðkendur, sem tryggir persónulega leiðsögn og notalegt umhverfi.
Iðkendur fá aðgang að öllum opnum tímum hjá Tilveran Studio á meðan námskeiðið stendur yfir og geta prófað aðra tíma eftir því sem þeim líður vel með. Námskeiðið er gott fyrsta skref að reglulegri hreyfingu með það að markmiði að byggja upp styrk, auka sjálfstraust og skapa jákvæða upplifun af hreyfingu.28.900 kr.
Námskeiðið er ætlað konum sem vilja koma sér rólega aftur af stað eftir hlé eða finna fyrir þreytu, álagi eða óöryggi í hreyfingu.
Námskeiðið samanstendur af átta tímum.
Kennsla fer fram á mánudögum og miðvikudögum kl. 12:10–13:00.
Hámarksfjöldi þátttakenda er tíu á hvert námskeið.
Verð: 28.900 kr.
Námskeið hefst aftur 17. ágúst 2026