Fara í efni

Krílafimi

23.900 kr.

Skemmtileg hreyfing, leikur og gleði fyrir yngstu iðkendurna.

Krílafimi er skemmtilegt og uppbyggilegt námskeið fyrir börn fædd 2022–2024.

Í gegnum leik, dans, söng, jóga og fjölbreyttar æfingar fá börnin tækifæri til að efla líkamsvitund, samhæfingu, jafnvægi og sjálfstraust – allt í notalegu og hvetjandi umhverfi.

Takmarkað pláss er í hverju námskeiði. Gert er ráð fyrir að eitt foreldri fylgi hverju barni, en þegar barnið er orðið öruggt gæti foreldrið beðið fyrir utan.

Tveir aðstoðarkennarar eru með í tímunum til að leiðbeina börnunum.

Flokkur:

Lýsing

Krílafimi hefst 6. september.

  • 8 vikur- einu sinni í viku.
  • Sunnudagar kl. 10:00 – 10:45
  • 12 börn á námskeið
  • Forskráning á næsta námskeið
  • 20 % afsláttur fyrir foreldra í Tilveran Studio
  • Verð: 23.900,-