Fara í efni

Bleikir og hollir molar

Jana steingrímsdóttir, jógakennari og heilsukokkur, töfrar fram hverja hollu uppskriftina af fætur annarri. Bleiku kókosmolarnir eru engin undantekning, einfaldir í undirbúningi, næringarríkir og ómótstæðilegir á bragðið.

Uppskriftina má nálgast hér að neðan:

Hráefni:

  • 4 bollar kókosmjöl 
  • 1 bolli möndlumjöl
  • 2 msk kollagen duft (valfrjálst)
  • 1/3 bolli fljótandi kókosolía
  • 1/3-1/2 bolli akasíu hunang eða önnur fljótandi sæta
  • 1 tsk vanilla
  • 5-6 hylki af rauðrófudufti (opnið hylkin og notið duftið úr belgjunum)
  • smá salt

Aðferð:

  1. Öll hráefnin eru sett í skál og hrærð vel saman. Einnig má nota matvinnsluvél til að blanda hráefnunum.
  2. Setjið deigið á bökunnarpappírsklæddan platta eða bretti sem passar í frysti. Leggið aðra örk af bökunnarpappír ofaná deigið og fletjið vel út. 
  3. Frystið og skerið bitnana og geymið bitana í lokuðu íláti í frysti.
  4. Bræðið hvítu súkkulaði og dreifið yfir bitana.
  5. Það er líka voðalega fallegt að búa til litlar kúlur og velta upp úr kókosmjöli, setjið í box og geyma þannig í frysti.