Fara í efni

Tilgangurinn er að sá fræum

Aðalheiður Jensen, þjálfari og eigandi Tilveran Studio hitti Marín Möndu hlaðvarpstjórnanda Spegilmyndarinnar þar sem hún ræddi meðal annars um ferilinn, kvenheilsu og opnun Tilverunnar.

Alla, eins og hún er kölluð, er lærð leikskólakennari. Hún lærði Rope Jóga og lífsráðgjafann hjá Guðna Gunnarssyni heilsu- og lífsráðgjafa og um tíma kenndi hún vinsæla hópatíma hjá Primal. Konur og kvenheilsa er Öllu mikið hugarfóstur en hún segir að það sé ákaflega mikilvægt að fólk yfir höfuð velji sé hreyfingu sem er í grunninn skemmtileg.