Fara í efni

Unglingar- Barre og Pilates

39.900 kr.

Næsta námskeið hefst þriðjudaginn 15. september.

Námskeiðið er 10 vikur og kennt er tvisvar í viku, á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 16:00.

Staðsetning: Tilveran Studio, Garðatorgi 3
Lengd: 50 mínútur í senn
Aldur: 13–17 ára
Fjöldi: Aðeins 15 pláss á námskeiðinu
Verð: 39.900 kr.

Hægt er að nýta frístundastyrk og hvatapeninga.

Takmarkaður fjöldi er í hópnum til að tryggja persónulega leiðsögn, góða athygli og uppbyggilegt námsumhverfi fyrir hvern þátttakanda.

13 á lager

Flokkur:

Lýsing

Námskeið fyrir unglinga í Barre og Pilates

Námskeiðið er haldið í samstarfi við lífsstílsvörumerkið KENZEN. Allir þátttakendur fá vörur frá KENZEN.

Á námskeiðinu kemur Lana Kristinsdóttir, eigandi og stofnandi KENZEN, í heimsókn og segir frá stofnun fyrirtækisins sem hún stofnaði aðeins 21 árs gömul. Hún deilir einnig sinni reynslu af því að byggja upp fyrirtæki frá grunni á ungum aldri.

Á unglingsárunum hætta margir í hefðbundnu tómstundastarfi. Því er mikilvægt að bjóða upp á hreyfingu sem er bæði skemmtileg og uppbyggileg og stuðlar að auknum styrk, vellíðan og sjálfstrausti – bæði líkamlega og andlega. Tímarnir fara fram við skemmtilega tónlist og áhersla er lögð á að skapa jákvætt og hvetjandi umhverfi.

Færri komust að en vildu á síðasta námskeið.

Barre og Pilates eru fjölbreytt æfingakerfi sem leggja áherslu á styrk, liðleika, jafnvægi og góða líkamsbeitingu. Notast er við létt lóð, bolta og teygjur í fjölbreyttum, lifandi og krefjandi æfingum.

Tímarnir henta jafnt byrjendum sem þeim sem hafa stundað íþróttir áður. Allar æfingar fara fram undir faglegri leiðsögn þjálfara og er lögð áhersla á góða tækni og örugga líkamsbeitingu.

Kennari námskeiðsins er Svava Marín.