Vertu með í mömmuhóp Tilverunnar þar sem nýbakaðar mæður í fæðingarorlofi koma saman þrisvar í viku til að hreyfa sig, styrkjast og njóta.
Æfingarnar byggja á barre æfingakerfinu, þar sem við vinnum með stöðugleika, kjarnastyrk og líkamsbeitingu.
Barre er einstaklega skemmtilegt og áhrifaríkt æfingakerfi sem hentar vel eftir meðgöngu þar sem þú styrkir djúp vöðva, mjaðmagrind og bak og við vinnum aðallega með eigin líkamsþyngd og létt lóð.
Gott aðgengi fyrir kerrur og vagna.
Barre mömmur – Mánuður
24.900 kr.
Nýtt námskeið hefst 10. ágúst kl 9:00
Tímar eru 3x í viku, mánudaga, miðvikudaga og föstudaga. Hver tími er 50 mínútur.